Svavar Knutur - Vetrarsól

Tekst piosenki:


Allt sem er, brennur, fer
undan heimsins hörkuéljum.
Gæðir sér gammager
á hjörtum manna í slíkum heljum.

En eina veit ég vetrarsól
sem veitir sálu minni skjól.

Án þín er allt sem gler
og framtíðin í kuldabáli.
Segðu mér hvernig þér
hugnast að hitta mig að máli.

Þá myndi birta í hellinn minn
skína æ svo fögur inn.

Eina mey langar grey
að finna umfaðmandi arma.
Þó mín fley framar ei
sigli, aldrei mun það harma.

Því nú mun birta í hellinn minn
skína æ svo fögur inn.