Skalmold - Miðgarður

Tekst piosenki:


Manstu hvað gerðist í Miðgarði þá?
Ég sá, ég sá
Margt fyrir löngu var búið til lag,
ljóðið svo skrautlega skrifað
Hetju sem barðist við vængjaða vá?
Ég sá, ég sá
Baldur sem barðist af drengskap þann dag,
dó svo að við gætum lifað

Vafrandi enn um hrollkalt hraun,
hrakin sig glennir vofa
Hitinn frá brennu huggar raun,
hér sofa menn í kofa

Kvöld úr norðri, kalt í hlíðum,
knýr að dyrum myrkrið svart
Þolinmóð við þannig bíðum
þess að verði aftur bjart

Traustur máttur réttra rúna
róar geð er vindur hvín
Sorgir allar sefast núna,
sofðu, unga ástin mín